Aðalfundir
Aðalfundur KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu haldinn þann 26. mars 2026
kl. 16:30 í Hömrum í Hofi á Akureyri
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
- Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemi félagsins á síðastliðnu ári.
- Lagðir fram til úrskurðar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið ár.
- Úrslit allsherjaratkvæðagreiðslu í stjórnarkjöri kynnt.
- Kosinn löggiltur endurskoðandi félagsreikninga, tveir skoðunarmenn og tveir til vara.
- Kosnir þrír menn í kjörstjórn og jafnmargir til vara.
- Ákveðið árgjald félagsmanna og skipting þess milli sjóða.
- Tekin fyrir málefni starfsmenntunarsjóðs skv. reglum sjóðsins.
- Tekin fyrir málefni Átaks- og vinnudeilusjóðs, skv. reglugerð sjóðsins.
- Samþykkt fjárhagsáætlun næsta árs.
- Önnur mál.